Rannsóknir & Ráðgjöf
Að skilja betur til að gera betur
Ég vinn við rannsóknir og ráðgjöf á sviði þróunarsamvinnu og mannúðaðstoð, með sérstaka áherslu á nnnlent eignarhald, þátttöku, færniuppbyggingu og valdatengsl.
Ég tengi saman fræðilega þekkingu og reynslu af vettvangi, frá rannsóknum og stefnumótun yfir í verkefnahönnun, mat og þróun nýrra aðferða og verkfæra.

Rannsóknir
Rannsóknir mínar snúast einkum að þróunarsamvinnu, innlendu eignarhaldi og hver hefur raunverulegt vald til að skilgreina forgangsröðun, taka ákvarðanir og móta starfið.

Ráðgjöf
Ég veiti ráðgjöf til félagasamtaka, stofnana og annarra aðila sem starfa að alþjóðlegri þróunaramvinnu, meðal annars við rannsóknir, stefnumótun, verkefnahönnun, eftirfylgni og mat.

Matstæki
Ég þróa matstæki fyrir innlent eignarhald í þróunarsamvinnu sem ætlað er að gera staðbundnum samstarfsaðilum og samfélögum kleift að meta hversu mikið raunverulegt eignarhald þeir hafa á verkefnum sem unnin eru í þeirra nafni.
20+ ár
Rannsóknir, þróunarsamvinna, mannúðaraðstoð, háskólakennsla, félagasamtök, vettvangsstarf í Vestur-Afríku